Úrslit úr Áramótarmótinu
Áramótamótið var á sínum stað á Gamlársdag og skutum við árið í burtu að gömlum sið. 6 keppendur tóku þátt og skotið var á 50 dúfur í skítakulda og bráluðu roki sem gerði keppendum nokkuð erfitt fyrir.
Reynir Þór Reynisson var í fyrsta sæti með 19 dúfur í fyrri hring og 18 í seinni hring samtals 37 dúfur.
Guðmundur Óskarson var í öðru sæti með 15 og 14 dúfur samtals 29 dúfur.
Bjarni Sigurðsson var í þriðja sæti með 18 og 11 dúfur samtals 29 dúfur.
Skotið var um annað sæti í bráðabana sem tók fljótt af því Gummi hitti 2 dúfur en Bjarni 1 dúfu.
Viljum við þakka K flugeldum fyrir verðlaunin
Gleðilegt ár Stjórnin