Síðasta mót ársins
Eftir spennandi keppni urðu úrslit síðasta mót ársins 2008, þau að Guðmundur Óskarsson varð í fyrsta sæti, Árni Pálsson í annað sæti og Bjarni Sigurðsson í þriðja sæti. Á myndunum sjást félagarnir bæði með keppnis græjurnar og svo því sem skotið var með um kvöldið.
Þá er komið að því að við höldum okkar árlega áramóta mót á síðasta degi ársins. Mótið hefst kl 13:00 og er æskilegt að menn verði mættir hálftíma fyrir mót.
Við viljum brýna fyrir mönnum að allir eru velkomnir en aðeins félagsmenn sem hafa greitt sín félagsgjöld keppa til verðlauna, sem að vanda eru veglegir flugeldar í boði K-sins og þökkum við þeim kærlega fyrir þann góða stuðning og hvetjum við félagsmenn til þess að versla hjá þeim.
Áramótakveðja, Stjórnin.