Íslandsmet hjá okkar fólki á Kópavogsmótinu
Okkar fólki gekk mjög vel á Kópavogsmótinu í loftgreinum í gær. Hún Sigríður Eygdís Gísladóttir gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í loftriffli, unglingaflokki kvenna. Hún er mjög metnaðarfullur keppandi sem er nýbyrjuð og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni. Svo voru þeir Richard Brian Bushing (gull) og Kristján Snær Jónsson (silfur) í unglingaflokki pilta með gull og silfur.
Kennarinn þeirra varð svo í öðru sæti í loftriffli karla. Dúi Sigurðsson keppti einnig í loftskammbyssu í fyrsta skipti og byrjaði á því að skjóta sig upp um flokk. Vel gert Dúi.
Þessi vika hefur verið tímamót fyrir skotdeildina þar sem við erum að tefla fram mikið af frambærilegu skotíþróttafólki og við vorum að fá fréttir af því að umsókn okkar um betri aðstöðu til að æfa loftgreinarnar voru samþykktar. Meira um það seinna. Áfram Keflavík!