Góð helgi hjá Skotdeildinni síðustu helgi
Um helgina sem leið voru tvö Íslansdmót haldin í skotgreinum, Íslandsmót í 50 metrum liggjandi haldið í Digranesi hjá Skotíþróttafélagi Kópavogs og svo Íslansdmótið í þrístöðu haldið í Egilshöll hjá Skotfélagi Reykjavíkur.
Skotdeild Keflavíkur kom heim með 2 Íslandsmeistaratitla og eru því komnir með 5 það sem af er af árinu. Klárlegt að nýja aðstaðan í Sundmiðstöðinni er að skila sínu. Bjarni Sigurðsson varð í 1. sæti í 3. flokki og skaut sig upp í 2. flokk en aðeins 3.6 stigum frá 1. flokks skori. Theodór Kjartansson varð Íslansdmeistari í þrístöðu í 3. flokki, en þrístaðan er spennandi grein sem sí fleiri eru byrjaðir að stunda.
Íslandsmótið í 50 metrum liggjandi, laugardaginn 30 apríl:
Jón Þór Sigurðsson, Skotíþróttafélagi Kópavogs, setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í 50m liggjandi riffli þegar hann skorðaði 623,7 stig á Íslandsmeistaramótinu í 50m liggjandi riffli sem fram fór í Íþróttahúsinu Digranesi í dag, laugardaginn 30. apríl. Þetta er glæsilegur árangur hjá Jóni Þór sem hefur æft af kappi síðustu mánuði eftir að hann fékk í hendurnar nýjan Grünig + Elmiger riffil en fram að þeim tíma hafði Jón Þór notast v...ið lánsriffla. Þessi árangur Jóns Þórs dugði honum að sjálfsögðu til Íslandsmeistaratitils í karlaflokki en Guðmundur Helgi Christensen, Skotfélagi Reykjavíkur, varð annar með 615,5 stig. Guðmundur Helgi varð jafnframt Bikarmeistari keppnistímabilsins. Þriðja sætið kom svo í hlut Vals Richters sem keppti fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar en Valur skoraði 611 stig.
Í kvennaflokki varð Bára Einarsdóttir, Skotíþróttafélagi Kópavogs, (SFK) Íslandsmeistari en stig Báru voru 608,2 stig. Jórunn Harðardóttir, SR, varð önnur á 599 stigur og Íris Eva Einarsdóttir, einnig úr SR, varð þriðja með 568,3 stig.
Í liðakeppni karla sigraði A sveit SFK með 1817,7 stig en sveitina skipuðu Stefán Eggert Jónsson og Arnfinnur Auðunn Jónsson auk Jóns Þórs.
A sveit SÍ varð í öðru sæti liðakeppninnar með 1796,3 stig en sveit Ísfirðinganna skipuðu Valur Richter, Guðmundur Valdimarsson og Ívar Már Valsson.
A sveit SR varð þriðja skipuð þeim Guðmundi Helga, Þorsteini B. Bjarnarsyni og Þóri Kristinssyni. Skor þeirra var 1791 stig.
Ein sveit mætti til leiks í liðakeppni kvenna, A sveit Skotíþróttafélags Kópavogs, skipuð Báru Einarsdóttur, Guðrúnu Hafberg og Margréti Lindu Alfreðsdóttur. Samanlagt skor þeirra var 1714,7 stig
Á Íslandsmeistaramótinu var keppt í flokkum og varð Jón Þór Íslandsmeistari í Meistarafrlokki.
Valur Richter, SÍ, varð Íslandsmeistari í 1. flokki.
Þórir Kristinsson, SR, varð Íslandsmeistari í 2. flokki og Bjarni Sigurðsson, Skotdeild Keflavíkur, varð Íslandsmeistari í 3. flokki.
Í Meistaraflokki kvenna varð Bára Einarsdóttir Íslandsmeistari.
Íris Eva varð Íslandsmeistari í 3. flokki og Guðrún Hafberg í 0 flokki.
Íslandsmótið í þrístöðu, sunnudaginn 01. maí.
Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í 50 metra Þrístöðu riffli í dag en hann skoraði 1,107 stig í 3x40 skotum. Í öðru sæti varð Theódór Kjartansson úr Skotdeild Keflavíkur með 1,007 stig og í þriðja sæti Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 896 stig.
Í kvennaflokki þar sem skotin eru 3x20 skot varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari með 522 stig, önnur varð Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 507 stig og í þriðja sæti varð Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 497 stig.
Í liðakeppni karla mætti aðeins ein sveit til leiks, sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar en hana skipuðu Valur Richter, Leifur Bremnes og Ívar Valsson en skorið var 2,644 stig. Í liðakeppni kvenna sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur á nýju Íslandsmeti, 1320 stig. Sveitina skipuðu Jórunn Harðardóttir, Íris Eva Einarsdóttir og Dagný H. Hinriksdóttir. Í öðru sæti var sveit Skotíþróttafélags Kópavogs skipuð Báru Einarsdóttur, Margréti L. Alfreðsdóttur og Guðrúnu Hafberg.
Á Íslandsmeistaramótum er jafnframt keppt um Íslansmeistaratitil í flokkum og urðu þessir meistarar: Guðmundur H.Christensen í Meistaraflokki,Theódór Kjartansson í 3.flokki og Valur Richter í 0.flokki. Í kvennaflokki: Jórunn Harðardóttir í 2.flokki, Íris Eva Einarsdóttir í 3.flokki og Guðrún Hafberg í 0.flokki.
Áfram Keflavík!