Aðalfundur Skotdeildarinnar
Aðalfundur Skotdeildar Keflaíkur verður haldinn laugardaginn 25. janúar kl 14:00 í félagsheimili okkar á sunnubraut 34. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta sem geta.
Hér er úrdráttur úr lögum félagsins og Dagskrá aðalfundsins
Deildir, starfssvið.
19. gr.
Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sjálfstæðan fjárhag og kennitölu, en starfar á ábyrgð og forræði aðalstjórnar félagsins. Hver deild skal vera fjárhagslega sjálfstæð og skal hafa tekjur af félagsgjöldum félagsmanna deildarinnar, af ágóða íþróttamóta og öðrum fjáröflunum sem hún tekur sér fyrir hendur í samráði við aðalstjórn félagsins. Allar meiriháttar fjárhagslegar ákvarðanir einstakra deilda ber að leggja fyrir aðalstjórn til samþykktar. Í hverri deild skal skrá í sérstaka bók eða í tölvu úrslit kappleikja og árangur einstaklinga eða annað markvert sem fram fer innan deildarinnar.
Aðalfundir deilda.
20. gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.
21. gr.
Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.
22. gr.
Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:
1. Fundarsetning.
2. a) Kosinn fundarstjóri
b) Kosinn fundarritari.
3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.
4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.
5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
6. Ávörp gesta.
7. Kosningar:
a) Kosinn formaður til eins árs.
b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.
c) Kosnir 3 menn í varastjórn.
d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.
8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.
9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
10. Önnur mál.
11. Fundi slitið.
Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund
deildarinnar.
23. gr.
Á aðalfundi deildar ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórnar skal vera skrifleg ef þess er óskað. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið að nýju, bundinni kosningu. Verði þá atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.
Hlökkum til að sjá ykkur, stjórn skotdeildar Keflavíkur